Argentínumaðurinn ungi með fallegasta markið? (myndskeið)

Aðeins níu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla og því er ekki úr vegi að fara yfir fallegustu mörkin sem hafa verið skoruð á tímabilinu til þessa.

Alejandro Garnacho, táningurinn í liði Manchester United, þykir ansi sigurstranglegur ef kæmi til þess að kjósa um fallegasta markið núna eftir ótrúlegt mark hans í 3:0-sigri á Everton í nóvember síðastliðnum.

Fjöldi glæsilegra marka til viðbótar hafa hins vegar litið dagsins ljós og má sjá þau í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert