Ungstirnið hjá Arsenal næstu árin

Ethan Nwaneri í leik Arsenal gegn West Ham.
Ethan Nwaneri í leik Arsenal gegn West Ham. AFP/Adrian Dennis

Enski knattspyrnumaðurinn ungi Ethan Nwaneri skrifaði undir fyrsta atvinnumannasamninginn sinn hjá Arsenal í dag. 

Nwaneri, sem er 17 ára gamall, hefur nokkrum sinnum verið í leikmannahópi Arsenal á yfirstandandi tímabili. Þá lék hann megnið af síðari hálfleik gegn West Ham í deildinni í febrúar. 

Í september 2022 varð Nwaneri sá yngsti til að spila leik í ensku úrvalsdeildinni er hann var 15 ára og 181 dags gamall. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert