Klopp færði stuðningsmönnum gleðifréttir

Jürgen Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool gleðifréttir í dag.
Jürgen Klopp færði stuðningsmönnum Liverpool gleðifréttir í dag. AFP/Oli Scarff

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, færði stuðningsmönnum félagsins gleðifréttir á blaðamannafundi í dag.

Klopp var spurður út í stöðuna hjá bakverðinum Andrew Robertson, sem meiddist í landsleik Skotlands og Norður-Írlands á þriðjudaginn var.

„Hann æfir ekki í dag, en þetta eru ekki alvarleg meiðsli. Það eru góðar fréttir,“ sagði Þjóðverjinn.

Robertson meiddist á ökkla og var óttast að hann gæti orðið frá keppni í einhvern tíma. Nú er hins vegar ljóst að hann snýr aftur fyrr en í fyrstu var óttast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert