Mikill missir fyrir Manchester City

John Stones verður ekki með Manchester City á sunnudaginn.
John Stones verður ekki með Manchester City á sunnudaginn. AFP/Paul Ellis

Ensku varnarmennirnir John Stones og Kyle Walker verða ekki með Manchester City er liðið tekur á móti Arsenal í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn kemur, páskadag. 

Pep Guardiola, stjóri liðsins, staðfesti fjarveru þeirra á blaðamannafundi í dag en búist er við því að Svisslendingurinn Manuel Akanji, sem var einnig tæpur, verði með. 

Manchester City fær Arsenal í heimsókn á páskadag en Arsenal er í toppsæti deildarinnar með 64 stig. Þá er City í þriðja með stigi minna en Liverpool er í öðru með jafnmörg og Arsenal en verri markatölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert