Hondan fær nýtt útlit

Jenson Button á Hondunni í fyrra.
Jenson Button á Hondunni í fyrra. ap

Bílar Hondaliðsins fá enn nýtt útlit í ár. Þeir voru hvítir í grunninn 2006 en jarðarbláir í fyrra er liðið höfðaði til vistverndar. Sú hugmyndafræði verður áfram að baki útlitinu en það verður þó allt öðru vísi en 2007.

Segja fulltrúar Honda, að umhverfishugsuninni verði ýtt upp á efra plan með nýja útlitinu, sem þeir vilja þó ekki enn sem komið er tjá sig frekar um.

Næst má komast því að lýsa útliti Hondunnar í fyrra með því að segja að skrokkur hennar hafi verið umvafinn risastórri mynd af jörðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert