Todt hættir sem forstjóri Ferrari

Jean Todt við stjórnvöl Ferrariliðsins með Schumacher sér til fulltingis.
Jean Todt við stjórnvöl Ferrariliðsins með Schumacher sér til fulltingis. ap

Enn dregur úr hlutverki Jean Todt hjá Ferrari því hann hefur settur til hliðar sem forstjóri Ferrarifyrirtækisins. Hann verður áfram í stjórn þess og mun sinna hlutverki er lýtur að aðkomu þess á íþróttasviðinu.

Hluthafar í Ferrari kusu nýja stjórn félagsins til þriggja ára í dag og verður  Luca di Montezemolo áfram formaður hennar. Í stað Todt sem forstjóra hefur verið skipaður Ítalinn Amadeo Felisa.

Todt verður áfram fulltrúi Ferrari í íþróttaráði Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) sem er n.k. stjórn formúlu-1. Hann segir breytingar á stöðu sinni hafa í för með sér að hann hafi meiri frítíma fyrir sjálfan sig og önnur hugðarefni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert