Räikkönen marði Alonso á síðustu sekúndunum

Alonso og Briatore höfðu ástæðu til að fagna úrslitum tímatökunnar …
Alonso og Briatore höfðu ástæðu til að fagna úrslitum tímatökunnar í Barcelona. ap

Kimi Räikkönen hjá Ferrari var í þessu að vinna ráspól spænska kappakstursins í Barcelona eftir mjög tvísýna keppni. Við gríðarlegan fögnuð heimamanna var Fernando Alonso á Renault um tíma í efsta sæti í lokalotunni er aðeins Räikkönen átti sínum hring ólokið.

Alonso segir að það lyfti sér venjulega að keppa á heimavelli vegna mikils stuðnings úr áhorfendastúkunum. Á því var engin breyting nú og var hann ákaft hvattur til dáða og eins og áhorfendur nær allir væru í Renaultbláum skyrtum.

Er þetta langbesta frammistaða Alonso í tímatökum á árinu og virðist Renaultinn hafa haft gott af þeim endurbótum sem á honum hafa verið gerðar frá síðasta móti. Athyglisvert er að Räikkönen var aðeins tæpri tíund úr sekúndu fljótari í förum.

Felipe Massa á Ferrari varð þriðji en hann vann ráspólinn og setti svo  hraðasta hring á leið til sigurs í kappakstrinum í fyrra. Robert Kubica á BMW varð fjórði, sjö þúsundustu úr sekúndu á eftir Massa, en eftir fyrri tímahringinn í lokalotunni var hann í efsta sæti.

Massa var um stund í efsta sæti en í byrjun seinni tímahringja tók Lewis Hamilton á McLaren forystu.

Það dugði þó ekki lengi og varð hann á endanum fimmti, sæti á undan liðsfélaga sínum Heikki Kovalainen.

Annars var þetta eiginlega dagur Renault því auk langbesta árangurs Alonso í tímatökum á árinu komst Nelson Piquet í fyrsta sinn í þriðju umferð. Hefur hann keppni á morgun í tíunda sæti.

Honda missti naumlega af því að eiga mann meðal 10 bestu, Rubens Barrichello vantaði aðeins 65 þúsundustu úr sekúndu á að komast í lokalotuna. Félagi hans  Jenson Button varð þrettándi.

Sebastien Bourdais á Toro Rosso komst í aðra umferð annað mótið í röð og sló liðsfélaga sínum Sebastian Vettel aftur við. Bílar Máttar Indlands urðu báðir meðal 10 fremstu á æfingu í gær. Annað var uppi á teningnum í dag því Giancarlo Fisichella og Adrian Sutil urðu í aðeins 19. og 20. sæti  í tímatökunum.

Niðurstaða tímatökunnar varð sem hér segir og þar með rásröðin á morgun:

Röð Ökuþór Bíll Lota 1 Lota 2 Lota 3 Hri.
1. Räikkönen Ferrari 1:20.701 1:20.784 1:21.813 17
2. Alonso Renault 1:21.347 1:20.804 1:21.904 18
3. Massa Ferrari 1:21.528 1:20.584 1:22.058 16
4. Kubica BMW 1:21.423 1:20.597 1:22.065 13
5. Hamilton McLaren 1:21.366 1:20.825 1:22.096 14
6. Kovalainen McLaren 1:21.430 1:20.817 1:22.231 15
7. Webber Red Bull 1:21.494 1:20.984 1:22.429 19
8. Trulli Toyota 1:21.158 1:20.907 1:22.529 19
9. Heidfeld BMW 1:21.466 1:20.815 1:22.542 20
10. Piquet Renault 1:21.409 1:20.894 1:22.699 18
11. Barrichello Honda 1:21.548 1:21.049 12
12. Nakajima Williams 1:21.690 1:21.117 15
13. Button Honda 1:21.757 1:21.211 12
14. Glock Toyota 1:21.427 1:21.230 16
15. Rosberg Williams 1:21.472 1:21.349 15
16. Bourdais Toro Rosso 1:21.540 1:21.724 15
17. Coulthard Red Bull 1:21.810 6
18. Vettel Toro Rosso 1:22.108 10
19. Fisichella Force India 1:22.516 11
20. Sutil Force India 1:23.224 8
21. Davidson Super Aguri 1:23.318 9
22. Sato Super Aguri 1:23.496 9
Alonso fagnar í lok tímatökunnar
Alonso fagnar í lok tímatökunnar ap
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert