Hamilton og McLaren með undirtökin í Fuji

Hamilton vann lotu í rimmunni gegn Massa (t.h.) í tímatökunum …
Hamilton vann lotu í rimmunni gegn Massa (t.h.) í tímatökunum í Fuji. ap

Lewis Hamilton hjá McLaren var í þessu að vinna tímatökur japanska kappakstursins í Fuji. Lið hans stendur vel að vígi í rimmunni við Ferrari því félagi hans Heikki Kovalainen varð þriðji. Milli þeirra á rásmarki er Kimi Räikkönen hjá Ferrari en titilkandidatinn Felipe Massa varð aðeins fimmti.

Ráspóllinn er sá sjötti sem Hamilton vinnur á árinu og líklega sá mikilvægasti á lokapsrettinum í rimmu þeirra Massa um heimsmeistaratitil ökuþóra. En McLarenþórinn varð að tjalda öllu því sem hann átti því fyrir síðustu tímatilraunina var hann annar, á milli Räikkönen og Massa.

Räikkönen var eins og nýr maður miðað við undanfarin mót og það var ekki fyrr en á lokasekúndunum sem Hamilton komst upp fyrir hann. Massa bætti sig ekki í lokatilrauninni og hrapaði niður í fimmta sæti er Fernando Alonso á Renault og síðan Kovalainen komust fram fyrir hann í blálokin.

Hugsanlega getur þessi staða Massa veikt mjög vonir hans í titilslagnum en eftir er að koma í ljós hvernig keppnisáætlanir liðanna leggjast.

Robert Kubica hjá BMW varð sjötti en liðsfélagi hans Nick Heidfeld leið hörmungar. Féll út í fyrstu lotu og hefur keppni í aðeins 16. sæti. Aftar hefur hann ekki verið á rásmarki. Í byrjun vikunnar var hann endurráðinn hjá BMW og hefði eflaust viljað fagna því með öðrum hætti en þessum.

Toyotaþórarnir Timo Glock og Jarno Trulli verða á fjórðu rásröð á heimavelli liðsins, en Toyota á Fuji-brautina. Í níunda og tíunda sæti ræsa síðan ökumenn Toro Rosso, Sebastian Vettel og Sebastien Bourdais.

David Coulthard varð ellefti og hafði betur í tímatökum gegn liðsfélaga sínum  Mark Webber hjá Red Bull í aðeins annað sinn á árinu. Hondaliðið var slakt á heimavelli, bílar þess hefja keppni á næst öftustu rásröð.

Niðurstaða tímatökunnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Lota 1 Lota 2 Lota 3
1. Hamilton McLaren 1:18.071 1:17.462 1:18.404
2. Räikkönen Ferrari 1:18.160 1:17.733 1:18.644
3. Kovalainen McLaren 1:18.220 1:17.360 1:18.821
4. Alonso Renault 1:18.290 1:17.871 1:18.852
5. Massa Ferrari 1:18.110 1:17.287 1:18.874
6. Kubica BMW 1:18.684 1:17.931 1:18.979
7. Trulli Toyota 1:18.501 1:17.541 1:19.026
8. Glock Toyota 1:17.945 1:17.670 1:19.118
9. Vettel Toro Rosso 1:18.559 1:17.714 1:19.638
10. Bourdais Toro Rosso 1:18.593 1:18.102 1:20.167
11. Coulthard Red Bull 1:18.303 1:18.187
12. Piquet Renault 1:18.300 1:18.274
13. Webber Red Bull 1:18.372 1:18.354
14. Nakajima Williams 1:18.640 1:18.594
15. Rosberg Williams 1:18.740 1:18.672
16. Heidfeld BMW 1:18.835
17. Barrichello Honda 1:18.882
18. Button Honda 1:19.100
19. Sutil Force India 1:19.163
20. Fisichella Force India 1:19.910
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert