Williams og Massa

Massa og Bottas með aðalstjórnendum Williamsliðsins, Sir Frank og dóttur …
Massa og Bottas með aðalstjórnendum Williamsliðsins, Sir Frank og dóttur hans Claire Williams. mbl.is/williamsf1

Vertíðin í ár gæti þróast þann veg sem Frank Williams hefur lengi beðið eftir og vonað; að lið hans snúi á ný í toppslaginn í formúlu-1. Og víst þykir að Williams og mannskapur hans verði með þeim vinsælli í bílskúrareininni. 

„Enginn hefur neitt slæmt að segja um Felipe [Massa] og Williams,“ segir David Coulthard sem hóf keppnisferil sinn á sínum tíma með Williamsliðinu. „Það er snilld fyrir formúluna. Felipe er mjög vinsæll einstaklingur um jarðir allar og Frank Williams er stofnaði þessa vinsæla liðs. Allir vilja því vel og óska liðinu og Massa velfarnaðar,“ bætir Coulthard við.

Mark Webber ók sömuleiðis um skeið fyrir Williams og er himinlifandi yfir því að sjá það aftur í kastljósinu en liðið var með þeim alsterkustu við bílprófanir vetrarins.

„Það er frábært að þeir skuli vera með hraðskreiða og endingargóða bíla. Það verður fínt, sérdeilis flott, fyrir Frank og allan mannskapinn hans. Þeir hafa gengið gegnum erfiða tíma en þetta er gott lið,“ segir Webber.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert