Vettel tekur snúning

Ferrari FXX K.
Ferrari FXX K.

Ferrari hefur umbreytt LaFerrari sportbíl og létt hann sem mest til aksturs á kappakstursbrautum eingöngu. Sebastian Vettel prófaði þann ofurbíl.

Umbreyttur nefnist bíllinn Ferrari FXX K og þeir sem eru að spá í eintak af honum þurfa að leggja fram 2,9 milljónir dollara, um 390 milljónir króna á núverandi gengi.

FXX K er sagður afar hraðskreiður og var ekki annað að sjá á Vettel að hann hafi verið ánægður með getu bílsins sem fær sín þó tæpast notið til fulls í einkabraut Ferrari í Fiorano.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert