Sjötti ráspóll Rosberg í röð

Nico Rosberg á ferð í Abu Dhabi þar sem hann …
Nico Rosberg á ferð í Abu Dhabi þar sem hann vann sinn sjötta ráspól á vertíðinni í röð. mbl.is/afp

Nico Rosberg hjá Mercedes var í þessu að vinna ráspól kappakstursins í Abu Dhabi. Lét hann til skarar skríða í lokalotunni eftir að hafa verið annar í fyrstu lotunum tveimur. Er þetta sjötti ráspóll Rosberg í röð.

Í  öðru sæti og heilum 0,4 sekúndum á eftir varð heimsmeistarinn Lewis Hamilton liðsfélagi Rosbergs. Og í allra síðustu tilraun hreppti Kimi Räikkönen hjá Ferrari þriðja rásstaðinn, velti Sergio Perez hjá Force India af honum  niður í fjórða sæti.

Í sætum fimm til tíu  - í þessari röð - urðu Daniel Ricciardo á Red Bull, Valtteri Bottas á Williams, Nico Hülkenberg á Force India, Felipe Massa á Williams, Daniil Kvyat á Red Bull og loks Carlos Sainz á Toro Rosso.

Nico Rosberg var á eftir Lewis Hamilton í fyrstu tveimur …
Nico Rosberg var á eftir Lewis Hamilton í fyrstu tveimur lotunum en tók liðsfélaga sinn svo örugglega í lokalotunni. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert