Hamilton ögn fljótari

Lewis Hamilton í Sotsjí.
Lewis Hamilton í Sotsjí. AFP

Lewis Hamilton marði liðsfélaga sinn Nico Rosberg á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Sotsjí. Ók hann hringinn á1:36,403 mínútum en Rosberg var 68 þúsundustu úr sekúndu lengur í förum, á 1:36,471 mín. Þriðji varð Sebastian Vettel á Ferrari á 1:37,007 mín.

Hamilton og Rosberg skiptust á að setja hraðasta hring og voru í nokkrum sérflokki því Vettel var 0,604 sekúndum á eftir. Og  liðsfélagi hans Kimi Räikkönen var enn lengra á eftir í fjórða sæti á 1:37,727 mín., eða vel yfir sekúndu á eftir Mercedesmönnunum.

Williamsbílarnir urðu í fimmta og sjötta sæti, Felipe Massa á 1:37,918 og Valtteri Bottas á 1:37,985 mín. Max Verstappen á Toro Rosso átti sjöunda besta tímann, 1:38,133 mín., og fyrsta tuginn fylltu svo Jenson Button hjá McLaren (1:38,260), Carlos Sainz hjá Toro Rosso (1:38,465) og Sergio Perez hjá Force India (1:38,542).

Framan af voru ökumenn Red Bull meðal fremstu en er á leið tóku aðrir fram úr svo að Daniel Ricciardo átti á endanum ellefta besta tímann (1:38,622) og Daniil Kvyat (1:39,047) þann þrettánda besta. Milli  þeirra varð svo Fernando Alonso á McLaren (1:38,633).

Lewis Hamilton á lokaæfingunni í Sotsjí. Bíll hans virðist dvergvaxinn …
Lewis Hamilton á lokaæfingunni í Sotsjí. Bíll hans virðist dvergvaxinn í samanburði við fánana. AFP
Lewis Hamilton á leið til besta tíma á þriðju æfingunni …
Lewis Hamilton á leið til besta tíma á þriðju æfingunni í Sotsjí. AFP
Lewis Hamilton á þriðju æfingunni í Sotsjí.
Lewis Hamilton á þriðju æfingunni í Sotsjí. AFP
Lewis Hamilton leggur af stað í aksturslotu á lokaæfingunni í …
Lewis Hamilton leggur af stað í aksturslotu á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Fernando Alonso hjá McLaren leggur af stað í aksturslotu á …
Fernando Alonso hjá McLaren leggur af stað í aksturslotu á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Felipe Massa hjá Wililams á leið í aksturslotu á lokaæfingunni …
Felipe Massa hjá Wililams á leið í aksturslotu á lokaæfingunni í Sotsjí í morgun. AFP
Sebastian Vettel á Ferrari og Felipe Nasr á Sauber á …
Sebastian Vettel á Ferrari og Felipe Nasr á Sauber á lokaæfingunni í Sotsjí í morgun. AFP
Sebastian Vettel skríður til í beygju á lokaæfingunni í Sotsjí …
Sebastian Vettel skríður til í beygju á lokaæfingunni í Sotsjí í morgun. AFP
Skipt um dekk á Williamsbíl Felipe Massa á lokaæfingunni í …
Skipt um dekk á Williamsbíl Felipe Massa á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Nico Rosberg var skammt á eftir Hamilton á lokaæfingunni í …
Nico Rosberg var skammt á eftir Hamilton á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Valtteri Bottas hjá Williams klár í aksturslotu á lokaæfingunni í …
Valtteri Bottas hjá Williams klár í aksturslotu á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Valtteri Bottas á Williams og Felipe Nasr á Sauber á …
Valtteri Bottas á Williams og Felipe Nasr á Sauber á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Nico Rosberg (nær) Jenson Button á lokaæfingunni í Sotsjí.
Nico Rosberg (nær) Jenson Button á lokaæfingunni í Sotsjí. AFP
Liðsmenn Ferrari vinna í bíl Kimi Räikkönen á lokaæfingunni í …
Liðsmenn Ferrari vinna í bíl Kimi Räikkönen á lokaæfingunni í Sotsjí í morgun. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert