Verstappen á ráspól

Fagurt er til fjalla í Austurríki en Lando Norris á …
Fagurt er til fjalla í Austurríki en Lando Norris á McLaren varð að einbeita sér að akstrinum og naut því líklega ekki útsýnisins. AFP

Max Verstappen, sem ekur fyrir Red Bull liðið, var í þessu að vinna ráspól austurríska kappakstursins í Spielberg.

Í næstu tveimur sætum urðu liðsfélagarnir Valtteri Bottas og Lewis Hamilton hjá Mercedes, 0,2 sekúndum á eftir.

Lando Norris á McLaren, Sergio Perez á Red Bull, Pierre Gasly á AlphaTauri, Charles Leclerc á Ferrari, Yuki Tsunoda á AlphaTauri, Fernando Alonso á Alpine og Lance Stroll á Aston Martin sem var 0,867 sekúndum á eftir Verstappen.

Max Verstappen fagnar ráspólnum í Spielberg í dag.
Max Verstappen fagnar ráspólnum í Spielberg í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert