Ericsson skall á vegg

Sauber Ericssons skellur á veggnum í Silverstone.
Sauber Ericssons skellur á veggnum í Silverstone. AFP

Brautarverðir í Silverstone fylgjast með ákeyrslu Marcus Ericsson hjá Sauber á öryggisvegg á lokaæfingunni fyrir tímatökuna.

Skellurinn var harður eins og sjá má og tjón á bílnum mikið. Ericsson missti vald á bílnum er hann ók upp á blautar beygjubríkur með þeim afleiðingum að hann snarsnerist, rann út úr brautinni og hafnaði á öryggisvegg.

Stöðva varð æfinguna með bílbrakið var fjarlægt úr brautinni.


 

Marcus Ericsson fylgdist með því sem eftir var æfingarinnar í …
Marcus Ericsson fylgdist með því sem eftir var æfingarinnar í bílskúr Sauber. AFP
Sauberinn hendist af öryggisveggnum eftir skellinn harkalega.
Sauberinn hendist af öryggisveggnum eftir skellinn harkalega. AFP
Sauberinn hendist af öryggisveggnum eftir skellinn harkalega.
Sauberinn hendist af öryggisveggnum eftir skellinn harkalega. AFP
Brak Sauberbílsins flutt á brott úr brautinni í Silverstone.
Brak Sauberbílsins flutt á brott úr brautinni í Silverstone. AFP
Brautarverðir í Silverstone fylgjast með óhappi Ericsson.
Brautarverðir í Silverstone fylgjast með óhappi Ericsson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert