Liðsfyrirmæli í öllum mótum

Sebastian Vettel (nær) og Charles Leclerc á ferð eftir að …
Sebastian Vettel (nær) og Charles Leclerc á ferð eftir að sá síðarnefndi hafði hleypt liðsfélaga sínum fram úr í kappakstrinum í Sjanghæ. AFP

Ferraristjórinn Mattio Binotto vísar því á bug að liðsfyrirmælum hafi verið beitt í fyrstu mótunum til að styrkja stöðu Sebastians Vettels og veita honum forskot á Charles Leclerc.

Binotto kveðst hafa samúð með Leclerc en hann hefur þurft að sæta liðsfyrirmælum í öllum þremur fyrstu mótunum.  Þykir það í hróplegu ósamræmi við yfirlýsingar dagana fyrir fyrsta mót ársins, í Melbourne, að þeim Vettel og Leclerc „yrði frjálst“ að keppa innbyrðis í mótum.

Í Kínakappakstrinum um nýliðna helgi vann Leclerc sig fram úr Vettel á fyrstu metrunum en var síðan gert að hleypa honum fram úr svo hann gæti haldið til rimmu við ökumenn Mercedes sem þá voru í fyrstu tveimur sætunum.

Vettel reyndist ókleift að nálgast silfurörvarnar og allt varð þetta til þess eins að Max Verstappen á Red Bull dró Leclerc uppi og vann sig fram úr honum að lokum.

Í talstöðinni lýsti Leclerc andstöðu sinni við liðsfyrirmælin og Binotto kvaðst skilja kvörtun hans. Bar þó á móti því að fyrirmælin væru til marks um ójafna stöðu ökumannanna hjá Ferrari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert