Eiður góður í markalausu jafntefli Rangers og Barcelona

Eiður Smári Guðjohsen átti mjög góðan leik fyrir Barcelona í …
Eiður Smári Guðjohsen átti mjög góðan leik fyrir Barcelona í kvöld. Reuters

Rangers og Barcelona skildu jöfn, 0:0, í toppslag E-riðils Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á Ibrox vellinum í Glasgow í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan tímann fyrir Börsunga og átti afbragsleik en landsliðsfyrirliðinn var afar duglegur og vinnusamur og var talsvert í boltanum.

Rangers og Barcelona eru þar með efstu og jöfn í riðlinum með 7 stig. Lyon hefur þrjú stig eftir 2:0 sigur á Stuttgart í Þýskalandi. Fabio Santos og Karim Benzema gerðu mörk frönsku meistaranna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert