Edda Garðarsdóttir: Verð ekki vör við fordóma

Edda Garðarsdóttir verður að vanda á miðjunni hjá landsliði Íslands …
Edda Garðarsdóttir verður að vanda á miðjunni hjá landsliði Íslands þegar það mætir Grikklandi í dag. mbl.is/Kristinn

Edda Garðarsdóttir er orðin ein reyndasta knattspyrnukona Íslands. Hún á að baki 60 landsleiki og verður í eldlínunni í dag þegar Ísland leikur gegn Grikklandi í undankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvellinum.

Edda er 29 ára og leikur með KR. Hún er með BA-gráðu í sálfræði og kynjafræðum en starfar í dag hjá Landsbankanum.

Einn af liðsfélögum hennar, bæði hjá KR og landsliðinu er jafnframt sambýliskona og unnusta Eddu.

„Knattspyrnan hefur átt hug minn allan um langt skeið. Ég var ung farin að spila fótbolta og þegar ég var að verða 13 ára gömul lék ég minn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KR. Hjá KR hef ég spilað nánast allan minn feril, að undanskildum smá tíma sem ég var hjá Breiðabliki og hálft ár sem ég var í Danmörku.“ Þó Edda hafi verið aðeins hálft ár sem atvinnukona í Danmörku hefur hún þó fengið fleiri tilboð á ferlinum.

„Mér hefur boðist ýmislegt á ferlinum. Ég var í háskólanámi í Bandaríkjunum í fjögur ár og spilaði þá fótbolta þar. Í kjölfarið bauðst mér að fara til liðs í Þýskalandi en hafnaði því þar sem ég hafði eiginlega verið með svo mikla heimþrá í Bandaríkjunum og ákvað þá bara að vera heima á Íslandi.“

Ætlar að hætta eftir 2-3 ár

Edda segir það ekki vera oft sem að hún fái leiða á fótboltanum. Hins vegar geti orðið eitthvað hætt við því núna undir lok ferilsins.

„Ég hef spilað lengi með meistaraflokki og í sumar verð ég 29 ára. Konur hætta yfirleitt fyrr en karlar í þessu sporti, þannig það verður nú að segjast að það sé sigið á seinni hlutann á mínum ferli. Ætli ég eigi ekki eftir svona 2-3 ár sem leikmaður.“

En skyldi koma til greina að fara út í einhverja þjálfun eftir að skórnir verða lagðir á hilluna?

„Já, ég held því öllu opnu. Satt best að segja hef ég eiginlega töluverðan áhuga á því. Núna þjálfa ég 2. flokk kvenna hjá KR og kann því afar vel. Í vetur náði ég mér í einkaþjálfararéttindi og hef aðeins verið að vinna við það samhliða minni vinnu. Vegna þessa sá ég um styrktaræfingar hjá liðsfélögum mínum í KR síðasta vetur. Það var ekki leiðinlegt að fá að pína þær aðeins.“

Unnustan er samherji hennar

Edda býr með unnustu sinni, Ólínu G. Viðarsdóttur sem jafnframt er liðsfélagi hennar í KR og landsliðinu. „Við Ólína kynntumst nú bara í einhverjum gleðskap fyrir einhverjum árum síðan og vorum svo í sambandi eftir það. Við höfum svo verið saman núna í næstum sex ár.“

Edda segir knattspyrnuheiminn á Íslandi svo lítinn að þegar svona er sé það á allra vitorði og hún sé því ekki vör við neina fordóma, að minnsta kosti ekki í dag. En hvernig ætli það sé að æfa og spila með unnustu sinni? „Þetta gengur nú allt saman mjög vel og hefur alltaf gert. Það getur þó stundum samt verið örlítið erfitt þegar við keppum gegn hvor annarri á æfingu. Þá verður stundum einhver fýla eftir æfingu sem varir kannski í einhverja tvo klukkutíma. Það er þó ekkert daglegt brauð þó svona geti komið fyrir. Í rauninni er þetta bara eins og ég færi heim með Gunnu [Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur] eftir æfingu þar sem við hefðum verið að tækla hvor aðra. Það væri smá skap í manni eftir svoleiðis.

En það getur líka verið rosalega þægilegt að spila með Ólínu sem þekkir mig út og inn. Veit hvernig maður bregst við tapi og öðru slíku. Þá getur verið gott að hafa svoleiðis manneskju hjá sér.“

„Verðum að halda einbeitingu“

Þegar talið barst að landsleiknum við Grikkland var að sjá gríðarlega einbeitingu sem skein úr augum Eddu.

„Á pappírunum erum við sterkara lið en Grikkland og eigum að vinna þann leik. Hins vegar verðum við að halda einbeitingu og spila af fullri getu í þessum leik. Það er enginn fótboltaleikur gefins og þessi Grikkjaleikur er engin undantekning frá því. Við getum því alls ekki leyft okkur að bera einhverja óvirðingu fyrir andstæðingnum. Ég vona bara að spilamennskan hjá okkur verði ekki síðri en í síðasta leik og að við förum með sigur af hólmi.“

Edda verður í eldlínunni í dag þegar leikur Íslands og Grikklands fer fram á Laugardalsvellinum í dag en hann hefst klukkan 16:30. Vinni Ísland þann leik nægir liðinu jafntefli við Frakkland í lokaleiknum í undankeppninni, til að tryggja þátttökurétt sinn á lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer á næsta ári.

Í hnotskurn
Edda er 28 ára gömul og hefur leikið nær allan ferilinn með KR en einnig með Breiðabliki og hálft ár í Danmörku. Hún spilar sinn 61. A-landsleik í kvöld og hefur leikið ríflega 150 leiki í efstu deild.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert