Fleiri fúlir en Norðmenn

Henrik Larsson viðurkenndi að leikur Svía í kvöld hefði getað …
Henrik Larsson viðurkenndi að leikur Svía í kvöld hefði getað verið betri. Reuters

Það voru ekki aðeins Norðmenn sem voru ósáttir við sína menn í undakeppni HM í kvöld. Danir og Svíar fá ekki háar einkunnir heldur. Bæði liðin gerðu markalaus jafntefli í kvöld. Danir gegn Ungverjum og Svíar gegn Albaníu.

Gera sænskir fjölmiðlar mikið úr jafntefli sinna manna og gera alvarlega athugasemdir við 3-5-2 leikkerfið sem Lars Lagerback þjálfari lagði upp með í leiknum.

Danir eru eðlilega sáttari með stig gegn Ungverjum en væntingar voru meiri en það og kannski ekki að ósekju. Danir réðu lofum og lögum í leiknum án þess að skora mark þrátt fyrir að vera með sitt sterkasta lið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert