Sölvi Geir skoraði og SönderjyskE hélt sætinu

Sölvi Geir Ottesen.
Sölvi Geir Ottesen.

Sölvi Geir Ottesen skoraði fyrir SönderjyskE í dönsku deildinni er liðið gerði 1:1 jafntefli við Esbjerg og tryggði þar með sæti sitt í deildinni. Gunnar Heiðar Þorvaldsson gerði mark gestanna.

Sölvi Geir og félagar þurftu eitt stig til að tryggja sig áfram í deildinni og það tókst. Sölvi Geir og Gunnar Heiðar voru báðir í byrjunarliði hjá sínu félagi og Sölvi Geir setti hann eftir aðeins fjórar mínútur, Gunnar Heiðar jafnaði á 12. mínútu og þar við sat.

Stefán Gíslason tók út leikbann er Bröndby tók á móti Midjylland og tapaði 2:4 á heimavelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert