Raúl til Bandaríkjanna

Raúl fagnar einu af mörgum mörkum sínum með Real Madrid.
Raúl fagnar einu af mörgum mörkum sínum með Real Madrid. Reuters

Spænski knattspyrnumaðurinn Raúl er sagður ætla að yfirgefa Real Madrid í sumar og halda til liðs við New York Red Bulls í bandarísku atvinnumannadeildinni, eftir því sem spænska íþróttablaðiðið Marca heldur fram í morgun.

Hinn 32 ára framherji sem er markahæsti leikmaður í sögu Real Madrid hefur stöku sinnum gefið til kynna að hann langaði til að enda ferilinn í Bandaríkjunum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert