Eyjólfur tryggði GAIS dýrmætan sigur

Eyjólfur Héðinsson.
Eyjólfur Héðinsson. www.gais.se

Eyjólfur Héðinsson skoraði sigurmark GAIS í kvöld þegar liðið vann mikilvægan sigur á Häcken, 2:1, í viðureign Gautaborgarliðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Eyjólfur skoraði markið á 79. mínútu en hann og Hallgrímur Jónasson léku báðir allan leikinn með GAIS.

Lið þeirra lyfti sér uppí 11. sæti deildarinnar með 29 stig en fallbaráttan er geysilega hörð. Meistararnir frá í fyrra, AIK, eru í 14. sætinu með 25 stig en liðið sem endar þar þarf að fara í umspil. Í fallsætunum tveimur eru svo Brommapojkarna með 24 stig og Gefle með 23 stig en fimm umferðum er ólokið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert