Lagerbäck: Flestir leikir vinnast á sterkum varnarleik

Lars Lagerbäck á landsliðsæfingu. stækka

Lars Lagerbäck á landsliðsæfingu. mbl.is/Golli

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Japan í dag en þar mættu um hundrað fulltrúar frá fjölmiðlum eftir því sem fram kemur á vef KSÍ.

Fundurinn var haldinn vegna vináttulandsleiks Japans og Íslands sem verður fyrsti landsleikur Íslands undir stjórn Lagerbäcks.

Eftirfarandi atriði úr málflutningi Svíans voru dregin saman á vef KSÍ:

Lars sagðist alltaf byggja lið sitt á sterkum varnarleik, lykilatriði í öllu leikskipulagi og hann tók skýrt fram að hann hefði „engar sérstakar áhyggjur af því hvort lið hans spili skemmtilegan fótbolta, aðalmálið er að leika vel og ná í stig, helst sigur í hverjum leik. Það þýðir þó ekki að það verði að leika blússandi sóknarbolta, flestir leikir vinnast á sterkum varnarleik.“ Og það er ætlun hans með íslenska liðið gegn Japan, að reyna að vinna leikinn. „Þessi leikur er auðvitað bara fyrsti leikurinn í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni HM 2014, en menn eiga samt alltaf að leika til sigurs, það er ekki síður mikilvægt að fá menn til að hugsa eins og sigurvegara (innsk. „winning mentality“).“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is