Gunnar skoraði aftur fyrir Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrra mark Norrköping í kvöld þegar lið hans lagði Gefle að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Gunnar kom Norrköping yfir í fyrri hálfleiknum en gestirnir jöfnuðu og allt stefndi í jafntefli þegar Imad Khalili skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok, eftir sendingu Gunnars Heiðars.

Eyjamaðurinn hefur þar með skorað í tveimur fyrstu leikjum Norrköping á tímabilinu en liðið er á toppnum í deildinni ásamt IFK Gautaborg með 6 stig eftir tvær umferðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka