Scolari tekur við Grêmio

Luiz Felipe Scolari hefur tekið við brasilíska liðinu Grêmio.
Luiz Felipe Scolari hefur tekið við brasilíska liðinu Grêmio. AFP

Luiz Felipe Scolari hefur tekið við þjálfun brasilíska liðsins Grêmio. Þetta staðfesti félagið í dag en einungis þrjár vikur eru liðnar frá því að Scholari stýrði brasilíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þar tapaði liðið sem kunnugt er 7:1 gegn Þýskalandi í undanúrslitum sem er stærsta tap liðsins á heimsmeistaramóti frá upphafi. Scholari sagði starfi sínu lausu eftir keppnina.

„Höfðinn er snúinn aftur. Felipe er nýi þjálfarinn“ sagði á heimasíðu félagsins um Scholari en hann stýrði félaginu árið 1987 og árin 1993-1996 með góðum árangri en hann gerði félagið að brasilískum deildarmeisturum árið 1996, í annað skipti í sögu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert