Líklegt byrjunarlið Inter á morgun

Nemanja Vidic verður líklega í byrjunarliði Inter á Laugardalsvelli annað …
Nemanja Vidic verður líklega í byrjunarliði Inter á Laugardalsvelli annað kvöld. AFP

Leikmenn Inter Mílanó komu til Íslands í dag og munu æfa á Laugardalsvelli í kvöld, en Inter mætir svo Stjörnunni í fyrri leik liðanna í 4. umferð Evrópudeildar UEFA á Laugardalsvelli klukkan 21.00 annað kvöld.

Samkvæmt heimildum mbl.is mun Inter spila leikskipulagið 3-5-1-1. Líklegasta byrjunarlið Inter eins og ítalskir blaðamenn telja að Walter Mazzarri knattspyrnustjóri liðsins muni stilla upp má sjá hér fyrir neðan.

Inter (3-5-1-1): Mark: Samir Handanovic. Vörn: Andrea Ranocchia, Nemanja Vidic, Juan Jesus. Miðja: Jonathan, Mateo Kovacic, Yanni M'Vila, Zdravko Kuzmanovic, Dodo Sókn: Hernanes - Mauro Icardi.

Tíu leikmenn til viðbótar komu með Inter til Íslands. Það eru Carrizo, berni, Andreolli, Silvestre, D'Ambrosio, Alvarez, Guarin, Obi, Osvaldo og Botta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert