Xabi Alonso til Bayern München

Xabi Alonso.
Xabi Alonso. AFP

Spænski miðvallarleikmaðurinn Xabi Alonso er á leið til þýsku meistarana í Bayern München frá Evrópumeisturum Real Madrid.

Félögin hafa náð samkomulagi um félagaskiptin en Alonso hefur leikið með Real Madrid frá árinu 2009 en hann var áður í herbúðum Liverpool.

Alonso er 32 ára gamall sem í gær tilkynnti að hann gefi ekki lengur kost á sér í spænska landsliðið en hann lék 114 leiki fyrir þjóð sína og skoraði 16 mörk.

Hann varð Evr­ópu­meist­ari með Spáni 2008 og 2012 og heims­meist­ari 2010. Hann lék sinn fyrsta lands­leik fyr­ir Spán árið 2003.

Xabi Alon­so lék síðast með spænska landsliðinu á HM í Bras­il­íu í sum­ar, þar skoraði hann meðal ann­ars eina mark Spán­ar gegn Hollandi í 5:1-sigri Hol­lands í 1. um­ferð riðlakeppn­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert