Casillas fékk kaldar kveðjur

Iker Casillas niðurlútur eftir tap sinna manna í gærkvöld.
Iker Casillas niðurlútur eftir tap sinna manna í gærkvöld. AFP

Iker Casillas markvörður og fyrirliði Evrópumeistara Real Madrid fékk kaldar kveðjur frá stuðningsmönnum Real Madrid eftir ósigurinn gegn Spánarmeisturum Atlético Madrid í gærkvöld.

Stuðningsmenn Real Madrid bauluðu á Casillas þegar hann gekk af velli en honum var kennt um  bæði mörkin sem Spánarmeistararnir skoruðu í leiknum.

„Áhorfendurnir hafa síðasta orðið og ef þeim fannst þeim þurfa að blístra á mig þá verður maður bara að taka því og virða gjörðir þeirra. Maður verður bara að svara þessu með því að æfa og spila fótbolta,“ sagði Casillas eftir leikinn en Real Madrid hefur tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni.

Casillas átti ekki sjö dagana sæla á HM í sumar og sérstaklega eftir 5:1 ósigurinn gegn Hollendingum. Casillas átti þar afleitan leik og var sakaður um tvö ekki þrjú af mörkunum sem Hollendingarnir skoruðu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert