Spánarmeistarar unnu í vítakeppni

Frá viðureign Atlético Madrid og Leverkusen í kvöld.
Frá viðureign Atlético Madrid og Leverkusen í kvöld. AFP

Spánarmeistarar Atlético Madrid eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í knattspyrnu eftir að hafa slegið þýska liðið Bayer Leverkusen út þar sem úrslitin réðust í vítakeppni.

Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1:0 og samanlagt, 1:1, en Atlético Madrid hafði betur í vítakeppni, 3:2. Þjóðverjarnir fóru illa að ráði sínu á vítapunktinum en þrjár spyrnur þeirra fóru yfir markið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert