Falcao með tvö og kominn í gang?

Radamel Falcao.
Radamel Falcao. EPA

Radamel Falcao skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir landslið Kólumbíu sem vann stórsigur á Barein, 6:0, í vináttulandsleik þjóðanna í Barein.

Falcao hefur ekki verið iðinn við kolann fyrir United í vetur og aðeins skorað fjögur mörk fyrir liðið í 19 leikjum og útlit er fyrir að hann yfirgefi Rauðu Djöflana að leiktíðinni lokinni. Mögulega er þó kappinn að finna fyrra form með mörkunum tveimur í kvöld.

Mörkin hjá Falcao má sjá hér að neðan.

Fyrra markið.

Síðara markið var laglegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert