Stórt gat á buxum Guardiola

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Mesta spennan í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni var nánast horfin eftir tæplega þrjátíu mínútna leik í kvöld. 

Bayern München skoraði fimm gegn Porto í fyrri hálfleik og vann leikinn 6:1 og Barcelona komst eftir 30 mínútna leik í 2:0 gegn Paris SG.

Í öllum hamaganginum og fagnaðarlátunum hjá Bayern virðist hins vegar hinn snyrtilegi, Pepe Guardiola, knattspyrnustjóri liðsins, hafa orðið fyrir óhappi þegar jakkafatabuxur hans rifnuðu, eins og sést hér á myndinni fyrir neðan.

Það skipti þó litlu máli fyrir Bayern sem sigldi örugglega áfram, samtals 7:4

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert