Verðmætustu knattspyrnufélög í heimi

Christiano Ronaldo og Gareth Bale.
Christiano Ronaldo og Gareth Bale. AFP

Real Madrid er verðmætasta knattspyrnufélag í heimi samkvæmt nýjum lista Forbes tímaritsins en félagið er metið á 2,13 milljarða punda eða um tæpa 442 milljarða íslenskra króna.

Næstir koma erkifjendur þeirra í Barcelona en Katalóníufélagið er metið á 2,07 milljarða punda, eða 397 og hálfan milljarð íslenskra króna. 

Listann má sjá hér að neðan.

Manchester United er langstærst af ensku félögunum á þessum lista, í 3. sæti og er metið á 2,03 milljarða punda, eða 396 milljarða íslenskra króna.

Tíu verðmætustu knattspyrnufélög í heimi:

1 Real Madrid  2,13 milljarðar punda

2 Barcelona  2,07 milljarðar punda

3 Manchester United  2,03 milljarðar punda

4 Bayern München  1,54 milljarðar punda

5 Manchester City  905 milljónir punda

6 Chelsea 898 milljónir punda

7 Arsenal  859 milljónir punda

8 Liverpool 644 milljónir punda

9 Juventus  549 milljónir punda

10 AC Milan  508 milljónir punda

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert