Nani formsatriðum frá Tyrklandi

Nani er á leið til Tyrklands.
Nani er á leið til Tyrklands. AFP

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Nani er við það að ganga í raðir Fenerbahce í Tyrklandi, en félagið staðfesti að hann muni gangast undir læknisskoðun á sunnudag.

Nani kemur frá Manchester United, en hefur þegar samið um kaup og kjör við tyrkneska félagið. Viðræður gengu hægt þar sem eiginkona Portúgalans var óviss um að vilja flytja til Tyrklands samkvæmt fjölmiðlum þar í landi.

Nani mun að öllum líkindum skrifa undir þriggja ára samning ef allt gengur eftir, en hann var á síðasta tímabili lánaður til Sporting Lissabon í heimalandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert