AZ staðfestir brotthvarf Aronsf

Aron Jóhannsson í leik með AZ Alkmaar.
Aron Jóhannsson í leik með AZ Alkmaar. OLIVER WEIKEN

Bandaríski landsliðsmaðurinn Aron Jóhannsson kemur til með að leika með Werder Bremen í þýsku 1. deildinni í vetur. Þetta staðfestir AZ Alkmaar á heimasíðu sinni.

Aron heldur nú til Þýskalands og ræðir kaup og kjör við Werder Bremen. Í viðtali við vef AZ segir Aron að það sé góð tilfinning að taka næsta skref á ferlinum. „Það er augljóslega gott að fara í þýsku deildina sem er ein sú besta í heiminum.“

Þá segir Aron að hann komi til með að sakna AZ Alkmaar enda lærði hann mikið á tíma sínum þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert