Mark Messi bar af - myndskeið

Lesendur telja að Lionel Messi hafi skorað fallegasta mark Meistaradeildar …
Lesendur telja að Lionel Messi hafi skorað fallegasta mark Meistaradeildar Evrópu á síðastliðnu keppnistímabili. AFP

Lesendum uefa.com hefur undanfarið verið kleift að kjósa flottasta mark Meistaradeideildar Evrópu á síðasta keppnistímabili inni á vefsíðunni. Flestir telja að seinna mark Lionel Messi gegn Bayern Munchen í seinni leik liðanna í undanúrslitum keppninnar beri af. 

Messi fíflaði þá Jerome Boateng, varnarmann Bayern Munchen upp úr skónum áður en hann vippaði boltanum smekklega yfir Manuel Neuer, markvörð Bayern Munchen. 

Sjón er sögu ríkari og hér má sjá myndskeið af markinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert