84 milljónum verðmætari eftir hvern leik

Kevin De Bruyne.
Kevin De Bruyne. AFP

Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne hjá Wolfsburg er þrálátlega orðaður við Manchester City á Englandi. Hann hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn eftir að hafa verið seldur frá Chelsea og sannarlega hækkað í verði.

Wolfsburg keypti De Bruyne í janúar á síðasta ári á 25 milljónir evra. Hann er nú orðaður við City og er kaupverðið talið vera 75 milljónir evra, sem er ágæt verðmætaaukning á ekki meiri tíma.

Á þessu eina og hálfa ári hefur De Bruyne leikið 87 leiki í öllum keppnum, og hefur því hækkað í verði um 575 þúsund evrur eftir hvern þeirra, eða um 84 milljónir króna miðað við gengið í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert