Ronaldo upplýsir hver hans versti ótti sé

Cristiano Ronaldo er ekki óhræddur.
Cristiano Ronaldo er ekki óhræddur. AFP

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid og portúgalska landsliðsins, var í viðtali við spænska blaðið Libero á dögunum og upplýsti þá hver sinn versti ótti sé.

Hinn þrítugi Ronaldo segir að hann vilji lifa þar til hann verði áttræður eða níræður, en óttist það verst að deyja ungur. „Það er minn mesti ótti. Ég vil ekki deyja ungur, ég vil deyja sem gamall maður. Áttræður eða níræður,“ sagði Ronaldo í viðtalinu.

Ronaldo segir að hann reyni alltaf að gera sitt besta í öllum aðstæðum og láta reyna á þolmörk sín. „Síðustu tíu ár eða svo finnst mér það hafa virkað vel fyrir mig, svo ég reyni að halda því áfram. Ég reyni að njóta augnabliksins. Ég elska að spila fótbolta og vil að stuðningsmennirnir elski það jafn mikið og ég.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert