Hettuklæddur Mourinho í njósnaleiðangri

Mourinho í feluleiknum í gærkvöldi.
Mourinho í feluleiknum í gærkvöldi. Skjáskot/Independent

José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var meðal áhorfanda á leik Úkraínu og Spánar í undankeppni EM í gærkvöldi. Talið er að hann hafi verið að fylgjast með Andriy Yarmolenko, leikmanni Úkraínu.

Chelsea leita nú að leikmönnum til að styrkja hópinn í janúar en liðið hefur byrjað tímabilið hræðilega, er með átta stig eftir jafnmarga leiki.

Klæðnaður hans vakti mikla athygli en hann leit út fyrir að vera í feluleik og fólk á twitter var fljótt að líkja honum við hina ýmsu kvikmyndakaraktera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert