Forföll í varnarlínu Real Madrid

Raphael Varane reynir hér að elta Lionel Messi í leik …
Raphael Varane reynir hér að elta Lionel Messi í leik liðanna á dögunum. AFP

Real Madrid verður án tveggja miðvarða sinna næstu vikurnar. Sergio Ramos, fyrirliði liðsins fór nýverið í aðgerð á öxl og verður ekki meira með á árinu.

Nú er svo ljóst að Raphael Varane verður frá næstu þrjár vikurnar hið minnsta vegna meiðsla sem hann hlaut í leik gegn Shakhtar Donetsk í vikunni.

Varane er meiddur aftan í læri, en þessi 22 ára gamli Frakki hefur verið í lykilhlutverki hjá Real Madrid á þessu tímabili.

Real Madrid heimsækir Eibar í spænsku efstu deildinni á sunnudaginn næstkomandi. Real Madrid hefur fengið á sig sjö mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins og varnarleikur liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert