Þjálfari Valencia sagði upp

Nuno Espirito Santo.
Nuno Espirito Santo. AFP

Nuno Espirito Santo sagði í gærkvöld upp starfi sínu sem þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Valencia.

Santo tilkynnti þetta eftir 1:0 ósigur liðsins á móti Sevilla en þetta var áttundi tapleikur liðsins í 20 leikjunum undir stjórn Portúgalans á leiktíðinni.

„Það hefur verið mikill heiður að þjálfa Valencia,“ sagði Santo þegar hann greindi frá ákvörðun sinn en hann hefur stýrt liðinu undanfarna 17 mánuði.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert