Söderlund sagður á leið til Frakklands

Indriði Sigurðsson í baráttu við gamla FH-inginn Alexander Söderlund.
Indriði Sigurðsson í baráttu við gamla FH-inginn Alexander Söderlund. Ljósmynd/viking-fk.no

Norskir miðlar greina frá því að Alexander Söderlund framherji norska meistaraliðsins Rosenborg og norska landsliðsins sé á leið til franska liðsins St.Etienne.

Söderlund, sem lék með FH sumarið 2009, varð markakóngur norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 22 mörk.

Brottför Söderlund gæti opnað leiðina fyrir Matthías Vilhjálmsson að vinna sér fast sæti í liði Rosenborg en hann gekk í raðir liðsins á miðju tímabili frá Start.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert