Mark Birkis fyrir Basel - myndskeið

Birkir Bjarnason fagnar marki.
Birkir Bjarnason fagnar marki. AFP

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason skoraði eitt mark fyrir Basel sem vann Luzern örugglega 3:0 í efstu deild Sviss í knattspyrnu.

Birkir kom Basel á bragðið á 50. mínútu með snyrtilegu marki eftir að hafa sloppið einn í gegn og skoraði af stuttu færi.

Basel styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar í Sviss þar sem liðið hefur 46 stig en Luzern er í 4. sæti með 26 stig.

Myndskeið af marki Birkis má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert