Messi skoraði þrennu af bekknum í nótt

Messi fagnar einu af þremur mörkum sínum í nótt.
Messi fagnar einu af þremur mörkum sínum í nótt. AFP

Lionel Messi kom heldur betur sterkur inn af varamannabekknum í 5:0 sigri Argentínu á Panama í Ameríkubikarnum í nótt.

Messi missti af fyrsta leik Argentínu í Ameríkubikarnum á móti Síle vegna bakmeiðsla og var á varamannabekknum þegar Argentína mætti Panama í nótt. Otamendi kom Argentínu yfir á 7. mínútu en Argentínumönnum tókst aldrei að opna flóðgáttirnar á móti 10 manna liði Panama sem vörðust vel.

Lionel Messi kom inná á 61. mínútú leiks og tók öll völd. Landsliðsfyrirliðinn kom Argentínu í 2:0 á 68. mínútu og bætti tveimur mörkum við innan 12 mínútna. Síðan spilaði hann stórt hlutverk í marki Sergio Agüero á 90. mínútu sem kom Argentínumönnum í 5:0.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert