Skoraði annan leikinn í röð

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði í dag.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði í dag. Eggert Jóhannesson

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði í 2:2-jafntefli Stabæk gegn Urædd í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Stabæk hefur verið að berjast við efstu liðin í deildinni en Urædd er á botni deildarinnar. Gunnhildur náði að bjarga stigi fyrir Stabæk í dag.

Hún jafnaði metin á 67. mínútu leiksins en hún var að skora annan leikinn í röð. Hún skoraði sigurmarkið gegn Trondheims-Orn í síðustu umferð.

Stabæk er í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert