Hólmar reimaði á sig skotskóna

Hólmar Örn Eyjólfsson í leik með Rosenborg.
Hólmar Örn Eyjólfsson í leik með Rosenborg. Ljósmynd/Truls Lereggen

Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði eitt marka Rosenborg þegar liðið lagði Jón Guðna Fjóluson og félaga hans í Norrköping að velli, 3:1, í fyrri viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn fyrir Rosenborg og Matthías Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður hjá liðinu á 81. mínútu leiksins og Guðmundur Þórarinsson á 88. mínútu. Jón Guðni lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Norrköping. 

Leikurinn fór fram á Lerkendal Stadion, heimavelli Rosenborg, í Þrándheimi, en seinni leikur liðanna verður á Nya Parken, heimavelli Norrköping, eftir slétta viku og þar hafa Jón Guðni og félagar verk að vinna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert