Ógleymanlegt Evrópumót (myndskeið)

Evrópumótið í knattspyrnu í Frakklandi í sumar er flestum Íslendingum ógleymanlegt en á sínu fyrsta stórmóti komst íslenska liðið í átta liða úrslit eftir að hafa lagt Englendinga að velli, 2:1, í 16-liða úrslitum keppninnar.

AFP fréttaveitan hefur búið til skemmtilegt innslag um keppnina þar sem Íslendingum, leikmönnum sem stuðningsmönnum bregður fyrir, en Íslendingar settu heldur betur skemmtilegan svip á mótið þar sem Portúgalar stóðu uppi sem sigurvegarar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert