Rúrik lék allan tímann í tapi Nürnberg

Rúrik Gíslason í leik með íslenska landsliðinu.
Rúrik Gíslason í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúrik Gíslason lék allan tímann í fremstu víglínu með Nürnberg í kvöld þegar liðið tapaði fyrir 1860 München, 2:0, á útivelli í þýsku B-deildinni í knattspyrnu.

Þetta var aðeins níundi leikur Rúriks með aðalliði Nürnberg á tímabilinu og annar leikurinn sem hann er í byrjunarliðinu.

Nürnberg er í áttunda sæti deildarinnar en 1860 München er í 14. sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert