Albert í liði umferðarinnar

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Ljósmynd/psv.nl

Albert Guðmundsson, leikmaður PSV í Hollandi, er í liði vikunnar eftir frammistöðu sína í 2:0 sigri varaliðs PSV á NAC Breda í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í gær en liðið er birt á Twitter-síðu deildarinnar.

Albert skoraði bæði mörk sinna manna, en hann hefur þar með skorað sjö mörk á leiktíðinni. PSV er í fimmta sæti deildarinnar en getur að sjálfsögðu ekki unnið sér sæti í efstu deild þar sem um varalið er að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert