Tiger hitti Suarez og Messi

Íþróttamennirnir hittust að leik loknum.
Íþróttamennirnir hittust að leik loknum. Twitter síða Tiger

Stærstu stjörnur knattspyrnu og golfs hittust um helgina eftir leik Barcelona og Real Madrid. Liðin mættust á Hard Rock-leikvanginum í Miami þar sem þau léku  „Miami Clasico“, eða í International Champions Cup, þar sem Börsungar höfðu betur. Eftir leikinn fór stórkylfingurinn Tiger Woods ásamt börnunum sínum til leikmanna Barcelona.

Tiger virðist vera aðdáandi Börsunga, en hann gerði sér sérferð til Miami með börnin sín og vini þeirra.

Allir virtust vera alsælir með hittinginn, en bæði Tiger og Suarez birtu myndir á samfélagsmiðlum stuttu síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert