Risatilboði Barcelona í Coutinho hafnað

Philippe Coutinho
Philippe Coutinho AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hafnaði í dag tilboði upp á 113 milljónir punda í hinn brasilíska Philippe Coutinho. Liverpool hefur nú hafnað þremur tilboðum Barcelona í leikmanninn. 

Coutinho vill sjálfur fara til Barcelona og hefur hann formlega beðið um sölu frá félaginu, en Liverpool hefur lítinn áhuga á að selja leikmanninn. Coutinho hefur ekkert leikið með Liverpool á leiktíðinni til þessa og er framtíð hans óljós. 

Brasilíski sóknarmaðurinn er búinn að vera í herbúðum Liverpool síðan árið 2013 og er hann í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert