Ögmundur og félagar um miðja deild

Ögmundur Kristinsson á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
Ögmundur Kristinsson á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ögmundur Kristinsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, stóð á milli stanganna í marki Excelsior sem gerði 1:1-jafntefli gegn Sparta í níundu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld.

Excelsior er í ellefta sæti deildarinnar með ellefu stig eftir þetta jafntefli. Excelsior er tveimur stigum frá sæti sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppni um sæti í Evrópudeildinni og fjórum stigum frá fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert